 |
Monday, April 10, 2006
Posted at 4/10/2006 6:35:35 pm by TinnaB
Thursday, April 06, 2006

Hann gráni minn slasaðist um daginn og ég fór með hann meðvitundarlausann á bílaspítalann,, það var nú ekki meira en það að það slitnaði tímareimin ( ég hélt reyndar að það væri altonatorinn - wat ever that is ) en gamli jálkurinn komst aftur á götuna í heila 5 daga þegar skringilegt DIONG heyrðist og puff,, Gráni gamli orðin veikur aftur. Ég hringdi bara í hana Sollu mína og voð fórum bara að fá okkur bjór til að dekkja sorgum mínum Því ég vara viss um að nú væri sálufélagi minn farin fyrir fullt og allt.. Leiðin lá að senda litla bróður á bílasölur " ekki fer ég á bílasölur það er svo leiðinlegt" að finna fínann "konu"bíl. Auðvitað af því að orðið kona og bíll voru í sömu setningu kom hann með þann allra ljótasta bíl sem ég hef á æfi minni séð svo að ég fór með og viti menn ...... ég fann ástina á ný .......
Hann heitir Pussi og er silfur....
Rosa sætur og mjúkur,, ég finn að við eigum eftir að eiga góðar stundir saman.

Reindar kom Gráni bara til baka sama dag og Pussi kom inn í mitt líf hann hafði bara slitið steng sem var settur aftur í samband,,,,,,, en eftir að hafa séð Pussa þá get ég ekki farið aftur.
Því miður Gráni minn hann pussi er ekki eins geðstirður og þú.... svo er hann líka 11 árum yngri, við bara verðum að slíta þessu.... ég er farin frá þér.
Posted at 4/6/2006 2:46:02 pm by TinnaB
Sunday, March 26, 2006
Í minni vinnu tala ég mikið í síma og um daginn fékk ég þetta furðulega komment frá voða fínum og vel virtum buissness manni í gegnum símann,, Thank you Tinna now your voice will be in my head for the rest of my life.............. you have a verry nice voice"
Ha? ég fékk svo creeeps niður bakið,, en svo fór ég að hugsa þetta,, þetta er alls ekki í fyrsta skiptið sem að ég heyri eitthvað svona,, látum okkur nú sjá.......
þegar að ég vann á Nings í gamladaga hringdi alltaf einn kall um sextugt og bað um að fá að pannta hjá mér, og svo þegar ég kom í símann bað hann mig um að söngla fyrir sig af því að ég var með svo róandi og fallega rödd,,, jakkk..
Þegar ég vann á Hótel loftleiðum lenti ég nokkrum sinnum í því að einhver gesturinn hringdi niður í andyri og fór að ANDA í símann þegar ég svaraði.. þá vil ég benda á nokkrum sinnum.
Þegar ég vann hjá Innn lenti ég OFT í því að einhver hringdi og fór að anda í símann bað mig um að anda á móti... hahahaha (sumir gamlir perrar rugluðust á símanum á Rauðatorginu)
Mér hefur verið boðin VINNA á Rauðatorginu við að lesa sögu , - úúuúúu sé mig í anda.
Mér hefur verið boðin vinna á útvarpsstöð..
Mamma mín frétti fyrir nokkrum árum hvað stúlkan á símanum í vinnunni minni væri með fallega rödd (sem var á þeim tíma engin önnur en moi) frá manni sem vissi ekki að hún væri mamma mín.
Einu sinni svaraði ég í símann um miðja nótt og talaði við einhvern gaur sofandi í korter áður en að ég fattaði að ég þekkti hann ekki baun,,, hann hringdi daglega í 3 mánuði dag og nótt til að heyra mig segja "halló"
Augljóslega er ég með flaugils mjúka símarödd sem gerið fólk crazy, viðurkennið það bara þið sem hafið ekki þorað að segja mér það enn.......... Í framtíðinni get ég unnið sem símasölukona og mokað inn peningum eða á Vinalínunni eða jafnvel Rauðatoginu ef allt fer um þúfur.
Og það besta er að það þekkir mig enginn í símann.....

Ég setti inn einhverjar myndir
Posted at 3/26/2006 1:48:39 am by TinnaB
Wednesday, March 22, 2006
Sá þessa smáauglýsingu um daginn.....
Fyrirsögn: Driver til sölu
Lýsing:
Big Titan Driver til sölu á 8.000 krónur. Hann er lítið notaður, með grafítskafti og mjög stóran haus.
------------------
Ætli að það sé ekki góð hugmynd að fá sér einn á köldum vetrar morgnum til að hita bílinn fyrir sig, verst með hausinn, sé samt ekki vandamál með það,,,, kannski passar bílsjóra hatturinn ekki á hann. Ætli að það sé hægt að nota hann í eitthvað annað en bara að skutlast með mann? Er hann ljótur? Hvað gerir maður við skaftið?
Posted at 3/22/2006 4:13:42 pm by TinnaB
Thursday, March 16, 2006
Það er eitthvað svo gott að vera í Reykjavík.
Það er allt eitthvað svo stutt í allt. Ef ég væri ekki svona löt þá þyrfti ég ekki einusinni bíl,, ( ekki misskilja mig samt ég ÞARF bíl) Ég skrapp á kaffihús í gær og á leiðinni til baka fór ég að pæla í þessu, þarna inni á kaffihúsinu þekkti ég persónulega nokkra aðila, samt er þetta ekki staðurinn sem ég geri að vana mínum að hanga á en jú allt svo viðkunnalegt.
Þessari stuttu leið upp nokkrar húsalengdir á Laugaveginu hitti ég 3 í viðbót sem veifuðu skælbrosandi eins og ég væri einhver sem hefur ekki sést í 10 ár og ég með sama glottið á móti vinkandi eins og vitleysingur sem hefur ekki farið út í 10 ár.
Kannski var þetta vegna þess að það er verið að taka niður jólaljósin sem þýðir ekkert annað en hækkandi sól og sumarið á leiðinni eða er þetta alltaf svona í miðbænum?
... jú ég held það, þetta er bara alltaf svona.
Posted at 3/16/2006 1:20:25 pm by TinnaB
Friday, March 10, 2006
Þá er þetta komið búin að setja in einhverjar myndir inn á myndasíðuna.
Um helgina erum við saumaklúbburinn svo að fara í húsmæðraorlof. Langþráð helgi þar sem að 10 húsmæður liggja með tærnar upp í loftið drekka martini borða, fara í pottinn og sannleikann eða kontor reglulega.
En svona þangað til þá fann ég my sex bomb OMG þetta er geggjað ... HAhahah
Posted at 3/10/2006 9:05:28 am by TinnaB
Wednesday, March 08, 2006
Gerðum þetta fína video fyrir árshátíðina okkar..
Svo fórum við systkinin saman á árshátíð.
Hadið að við séum ekki sæt.

Posted at 3/8/2006 10:32:09 am by TinnaB
Thursday, February 23, 2006
Sigrún taggaði mig.... aftur
4 störf sem ég hef gegnt: KB banki Innn Hótel Loftleiðir 17
4 kvikmyndir sem ég get horft á aftur og aftur: Bridget Jones Something Abaut Mary Dirty Dancing Feris Buler's day of
4 staðir sem ég hef búið á: Reykjavík Hafnarfjörður Borgarnes Blönduósi
4 sjónvarpsþættir sem mér líkar: Friend Sex and the city Rockstar INXS HEX ( ég veit en það er geggjað spennó)
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum: Foz do Igul Azul Benidorm Svíþjóð London
4 vefsíður sem ég heimsæki daglega: mbl.is myspace.com google.com kbbanki.is
4 matarkyns sem ég held uppá: Shushi Humar Kjúklingur Indverskurmatur
4 staðir sem ég væri til í að vera á núna: Brasilíu í sundi Á kaffihúsi Í sólbaði anywhere
4 bloggarar sem ég klukka: Helst engann nema........ Sollu
Posted at 2/23/2006 9:33:15 pm by TinnaB
Ég tróð mér í einhverja nefnd í vinnunni ,, svona árshátíðarnefnd, rosa gama en ROSA mikil vinna, mikið verð ég fegin þegar að þetta verður búið, 2 vikur í stefnu ,, ég verð örugglega búin að gleyma hvað það er sem að ég vinn við þegar ég þarf svo aftur að fara að sinna vinnunni minni 100%
En árshátíðar eru ekkert grín og fatnaðurinn er vandamál svo að ég fór á netið til að grenslast til um hvað sé nú í tísku þetta árið og fann þessa fínu síðu,,
http://www.lesliehall.com/8-sweaters1.html
Svo svona fyrir ykkur sem vitið ekki hvað á að gera um helgina þá á skvísan afmæli, jeihey svaka party...
Posted at 2/23/2006 12:28:30 am by TinnaB
Wednesday, February 15, 2006
Hahahaha......
http://asp.internet.is/essess/blogpics/berlitz.mpg
Posted at 2/15/2006 1:18:08 am by TinnaB
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|